Lýsing
Fólk stendur frammi fyrir mismunandi áskorunum og breytingum, bæði á heimsvísu og í nærsamfélögum. Til að takast á við þennan óreiðukennda og hraðskreiða veruleika þurfum við að trúa á okkur sjálf og á hæfileika okkar, jafnvel þá leyndu, og vera óhrædd við að gera mistök.
Hver er frumkvöðull? SkilgreiningSmella til að lesa
Á ensku er talað um entrepreneur, orð sem fyrst var notað af franska hagfræðingnum Jean-Baptiste Say í kringum aldamótin 1800. Say sagði: „Frumkvöðullinn flytur efnahagsauðlindir úr umhverfi með lítilli framleiðni, yfir á svæði með meiri framleiðni og meiri afrakstur.” Í huga hans var frumkvöðullinn nánast göldróttur þegar kom að því að nýta auðlindir, frumkvöðullinn gat notað lítið fjármagn til að búa til nýstárlegar vörur. Samkvæmt Richard Callington er frumkvöðull einhver sem ástundar það að leggja mat á hugsanleg viðskipti í ljósi óljósrar framtíðar. Peter Drucker lýsti frumkvöðlunum sem uppfinningafólki, sem reiðubúið væri að taka áhættu til að koma af stað nýju verkefni til að skilar meiri hagnaði. Þessar lýsingar endurspegla eiginleika frumkvöðulsins, eins og áhættuvit, nýsköpun, forvitni… Við skulum skoða málið nánar! Tíu eiginleikar og tilhneigingar í fari farsælla frumkvöðlaSmella til að lesa
Við getum sagt að frumkvöðlastarfsemi sé í eðli sínu með mjög háan áhættustuðul. Forsenda áhættu er meðal fárra þátta sem aðgreina frumkvöðla frá stjórnendum. Slík áhætta tengist heildaróvissu um árangur og arðsemi frumkvöðlaframtaksins. Áskorun frumkvöðla felst í því að takast á við slíka óvissu með hugrekki, aðferðum og gagnrýninni hugsun, til að draga úr áhættunni og mæta væntanlegum niðurstöðum. Með frumkvöðlaviðhorfi er litið á erfiðleika sem frábær viðskiptatækifæri, sem bíða eftir að verða nýtt. Frumkvöðlar öðlast dýrmætan lærdóm af mistökum sem þeir geta notað til að breyta nýsköpunarstefnu sinni og endurstilla samkeppnisforskot sitt. Þess vegna þurfum við að einbeita okkur að frumkvæði og frumkvöðlahugsun. Frumkvæðisvitund, frumkvöðlahegðunSmella til að lesa
Sjálfsgeta Hvað er Smella til að lesa
Hvers vegna það er mikilvægtSmella til að lesa
Sjálfsgeta frumkvöðla er notuð til að skilgreina trú einstaklings á eigin hæfileikum, og hefur afgerandi hlutverk í mótun frumkvöðlaáforma. Að þessu leyti má gera ráð fyrir að sjálfsgeta frumkvöðla sé í samræmi við frumkvöðlaáform hverju sinni. Rannsóknir benda til þess að sterk tengsl séu á milli sjálfsgetu frumkvöðla og frammistöðu þess fyrirtækis sem frumkvöðullinn hefur stofnað. Almennt er viðurkennt að sjálfsgeta frumkvöðla (sem vísar til trúar einstaklings á getu hans til að sinna verkefnum og hlutverkum sem miða að árangri) gegnir mikilvægu hlutverki við að ákvarða hvort einstaklingar þrói með sér eigin frumkvöðla(starfs)feril eða sýni aðra frumkvöðlahegðun.
Sjálfsvitund Hvað er Smella til að lesa
Rannsóknir benda til þess að við sjáum sjálf okkur skýrar en áður, við erum öruggari og meira skapandi. Við tökum skynsamari ákvarðanir, byggjum upp sterkari tengsl og miðlum á skilvirkari hátt. Við erum ólíklegri til að ljúga, svindla og stela. Við erum betri starfsmenn sem fá fleiri stöðuhækkanir. Og við erum skilvirkari leiðtogar með ánægðara starfsfólki og arðbærari fyrirtæki. Mikilvæg kenning á þessu sviði segir að sjálfsvitund sé það hugarástand sem gerir fólki kleift að bera saman og meta núverandi viðmið sín, við innri væntingar. Sjálfsmeðvitaðir frumkvöðlar hegða sér af áreiðanleika, forystu og tilfinningalegri greind. Þeir móta sér og öðrum siðferðilega betra, sjálfbærara og meira skapandi vinnuumhverfi, og nýta þar djúpan skilning á siðferðilegum skyldum sínum, getu og sjálfsmynd hvers og eins. Við tölum um tvær gerðir sjálfsvitundar:
Fjórar erkitýpur ólíkrar sjálfsvitundar Þetta yfirlit kortleggur samspil innri sjálfsvitundar (hversu vel fólk þekkir sjálft sig) og ytri sjálfsvitundar (hversu vel fólk skilur sýn annarra á því). Fólk getur verið:
Hvers vegna það er mikilvægtSmella til að lesa
“Sjálfsþekking er upphaf visku” Aristóteles Nokkrir kostir sjálfsvitundar…
Samantekt SamantektSmella til að lesa
|
||
Verkefni! Lærið enn meira. | ||
Vertu þinn eigin andlegi þjálfari Persónuleg SVÓT greining |
Hvað manstu!
Tengd hugtök:
-
Frumkvöðlastarf:
Frumkvöðlastarf er starfsemi sem í eðli sínu hefur mjög háan áhættustuðul. Forsendan um áhættu í starfinu er meðal fárra þátta sem aðgreina frumkvöðla frá öðrum stjórnendum. -
Frumkvæðis- og frumkvöðlavit:
Frumkvæðis- og frumkvöðlavit vísar til hæfni einstaklings til að breyta hugmyndum í verk. Það felur í sér sköpunargáfu, nýsköpun og áhættusækni, svo og hæfni til að skipuleggja og stjórna verkefnum til að ná tilsettum markmiðum. -
Hvati:
„Hvati“ er það sem fólk öðlast þegar það er hvatt til að efla löngun sína og vilja til að sinna skyldum sínum og vinna saman að sameiginlegum markmiðum fyrirtækis. Með öðrum orðum, það þýðir að örva, ýta undir eða glæða áhuga fólks til ákveðinna aðgerða, í átt að þeim árangri sem búist er við af því. -
Sjálfsgeta:
Sjálfgeta vísar til trúar einstaklings á eigin getu til að framkvæma það sem nauðsynlegt er til að ná tilteknum frammistöðu, einskonar aðstæðubundið sjálfstraust. -
Sjálfsvitund:
Sjálfsvitund er hæfnin til að skynja og skilja það sem gerir þig að þér, þar á meðal persónuleika þinn, gjörðir, gildi, skoðanir, tilfinningar og hugsanir. Í meginatriðum er það sálfræðilegt ástand þar sem sjálfið verður í brennidepli athyglinnar. - Sjá öll hugtök
Ráðleggingar til kennara:
Í þessari námslotu, áður en farið er í að bera kennsl á og athuga hvað einkennir frumkvöðla, verða nemendur að reyna að ögra sjálfum sér í daglegum athöfnum sínum og samskiptum, bæði með kennslunni sem veitt er hér, og með þessu litla ráði.
Það er nauðsynlegt fyrir þau, sem námskeiði sitja, að öðlast góða þekkingu á öllu í kringum sig, spyrja sjálf sig spurninga, staldra við og hugsa án þess að vera of hrædd við að gera mistök, en reyna að taka frumkvæði og kraftmikla afstöðu á öllum sviðum lífsins.
Verkefni 1: Í þessu verkefni mun nemandinn reyna að læra af reynslu sinni. Hann/hún verður beðin(n) um að tilkynna óþægilegan þátt í lífi sínu sem hann/hún hefði getað tekist betur á við, og greina hann af meiri meðvitund og með aðstoð hugtakanna sem hann/hún lærði á þessu námskeiði.
Verkefni 2: Persónuleg SVÓT greining
Heimildir til viðbótar
https://www.imperial.ac.uk/education-research/evaluation/what-can-i-evaluate/self-efficacy/
https://trainingindustry.com/articles/leadership/the-importance-of-self-awareness-in-leadership/
Lykilorð
Frumkvöðlar, áhættuvit, frumkvæði, sjálfsgeta, sjálfsvitund, hvatning
Heimildaskrá
YouTube, Increase your self-awareness with one simple fix, Tasha Eurich, https://www.youtube.com/watch?v=tGdsOXZpyWE
-
Tengt fræðsluefni
- Gróskuhugarfar
- Mjúk færni
Þetta verkefni er unnið með styrk frá Erasmus+, samstarfsáætlun ESB. Útgáfa þessi endurspeglar eingöngu afstöðu höfundar og framkvæmdarstjórn ESB ber enga ábyrgð á því hvernig upplýsingar úr henni eru nýttar.
Legal description – Creative Commons licensing: The materials published on the SPECIAL project website are classified as Open Educational Resources' (OER) and can be freely (without permission of their creators): downloaded, used, reused, copied, adapted, and shared by users, with information about the source of their origin.