×
Stafrænt frumkvöðlastarf: að nýta sér tækifærin í kringum sig
Lýsing

Undanfarin ár hefur stafrænt umhverfi teygt sig inn á öll svið daglegs lífs fólks. Þetta hefur leitt til nýrra viðskiptatækifæra sem tengjast stafrænu frumkvöðlastarfi, tækifæra sem þarf að grípa.


Eyðublað fyrir námskeiðsmat    |    Spila hljóð    |    Hlaða niður: /    |   
Hvað er stafrænt frumkvöðlastarf?

SkilgreiningSmella til að lesa

Í stuttu máli er stafrænt frumkvöðlastarf stofnun fyrirtækis sem selur vörur eða þjónustu á netinu, án þess að þörf sé á líkamlegu rými til að þjóna viðskiptavinum.

 

Dæmi um stafræna starfsemi eru:

  • Netverslun (rafræn viðskipti). Að selja vörur eða þjónustu á netinu er nauðsynlegt í einhverju umfangi fyrir flest fyrirtæki nú til dags.
  • Netþjálfun (e-learning). Stafræn þjálfun er í uppsveiflu, þökk sé þeim óþrjótandi möguleikum sem hún býður upp á, þannig að ef þú ert sérfræðingur á einhverju sviði geturðu veitt gæðaþjálfun á þennan hátt.
  • Þemabundið blogg. Til dæmis um persónulega umhirðu, tölvuleiki, íþróttir eða næringu. Blogg sem veitir gæðaefni og öðlast mikilvægi getur aflað tekna með auglýsingum.
  • Áhrifavaldur / Youtuber / Streamer. Þó að líkurnar á að geta lifað á þessum starfsgreinum séu minni má ekki gleyma því að þær heyra einnig til stafrænnar frumkvöðlastarfsemi.

Kostir og möguleikarSmella til að lesa

Í COVID-19 heimsfaraldrinum hefur þú líklega tekið eftir því hversu mörg fyrirtæki í kringum þig hafa valið að halda uppi starfsemi á netinu og hversu mörg önnur hafa horfið vegna þess að þau hafa ekki skipt yfir í stafrænt form. Við vitum núna að stafrænt umhverfi er framtíð stórs hluta fyrirtækja. En veist þú hverjir kostir stafræns frumkvöðlastarfs eru?

  • Ný tækifæri. Þarfir neytenda eru að breytast og nú eru margar þeirra tengdar stafrænum heimi, þannig að þú getur fundið fjölmörg viðskiptatækifæri með því að selja vörur þínar eða þjónustu á netinu.
  • Sveigjanleg vinna. Þegar þú ert frumkvöðull ákveður þú þinn eigin vinnutíma. Þegar kemur að stafrænu frumkvöðlastarfi ertu ekki takmörkuð/takmarkaður við að vera í sama rými allan tímann, þar sem þú þarft aðeins hinu stafrænu tæki til að vinna, hvar sem er í heiminum.
  • Lítil stofnfjárfesting. Þar sem þú þarft ekki líkamlegt rými til að sinna vinnunni minnkar upphafsfjárfestingin verulega. Þú þarft aðeins tölvu og nettengingu til að byrja.
  • Meira sýnileiki. Þú munt geta náð til hvers sem er hvar sem er í heiminum, allt eftir markhópnum sem þú vilt vinna með. Jafnvel þótt sýnileiki þinn sé lítill í upphafi, muntu geta náð til mun fleira fólks en í óstafrænu frumkvöðlastarfi. En þú þarft að leggja þig fram.

 

Þrátt fyrir kosti stafræns frumkvöðlastarfs ættir þú ekki að missa sjónar af markmiðum þínum, þar sem árangur er ekki tryggður og samkeppnin er mikil,og þú getur fljótt villst af leið ef þú heldur ekki þrautseigju og einbeitingu.
Fyrstu skref hins stafræna fyrirtækisSmella til að lesa

  1. Skoðaðu möguleikana og hvað þú hefur fram að færa. Í hverju ertu góður? Hvað myndir þú vilja bjóða viðskiptavinum þínum? Hvernig myndir þú vilja vinna? Út frá þessu ættir þú að koma með viðskiptahugmynd.
  2. Greindu umhverfi þitt, markaðinn og hugsanlega keppinauta. Til að greina hagkvæmni hugmyndar þinnar geturðu framkvæmt mismunandi gerðir af greiningu, svo sem SVÓT greiningu (styrkleikar, veikleikar, tækifæri og ógnir). Að auki ættir þú að rannsaka hverjir keppinautar þínir gætu verið.
  3. Þróaðu þitt viðskiptasnið. Hvaða þjóðfélagshóp vilt þú miða á? Þú getur tekið tillit til aldurs, starfs, staðsetningar…
  4. Búðu til fyrirtækjaímynd við hæfi. Þegar þú hefur skilgreint allt sem þú þarft er kominn tími til að búa til gott nafn og aðlaðandi lógó. Gætu að viðeigandi litavali og leturgerð.
  5. Búðu til vefsetur. Þú getur fundið mörg ókeypis stafræn tól sem gera þér kleift að búa til vefsetur og síður á einfaldan hátt, og einnig fyrirtæki sem taka að sér slíka vinnu.
  6. Veldu réttu samfélagsnetin fyrir fyrirtækið þitt. Hugsaðu um markhópinn þinn - heldurðu að ef hugsanlegir viðskiptavinir þínir eru ungir, þá verði þeir fleiri á Facebook eða Instagram? Kíktu á námseininguna „Stjórnun samfélagsmiðla“ til að læra meira um þetta.
  7. Þróaðu og fylgdu stafrænni markaðsáætlun. Í þessari námseiningu muntu geta gert æfingarverkefni í tengslum við stafræna markaðsáætlun!

 

 

Að vera með starfsemi á netinu

MerkiSmella til að lesa

Til að starfa á netinu þarftu fyrst merki, eða lógó, sem auðkennir fyrirtækið þitt og aðgreinir það frá hinum. Einkennin sem það ætti að hafa eru:

  • Það ætti að vera einfalt, en aðlaðandi.
  • Það verður að vera frumlegt og tákna kjarna fyrirtækisins.
  • Það ætti að vera skalanlegt, þ.e. það ætti að vera hægt að nota í mismunandi stærðum og aðlagast mismunandi sniðum.
  • Það ætti að vera sígilt, ekki byggt á tísku.
  • Textinn þarf að vera læsilegur og laus við stafsetningarvillur.

 

Þó það sé ekki auðvelt að búa til gott merki geturðu fundið hjálpleg verkfæri á borð við eftirfarandi, sem veita þér innblástur og hjálpa þér að finna út hvernig þú vilt að merkið þitt líti út:

Hundruð ókeypis sniðmáta og gagna. Þessi síða býr til lógó sjálfkrafa með því að slá inn geira, nafn og leturgerð. Gerir kleift að búa til lógó sjálfkrafa með nafni fyrirtækisins og starfsemi þess.
https://www.canva.com/ https://www.logomaker.com/ https://looka.com/logo-maker/
VefseturSmella til að lesa

Vefsetur er nauðsynlegt svo viðskiptavinir geti fundið þig á netinu. Það mun skarta lógóinu þínu og hafa aðgengilega alla þætti sem varpa ljósi á vörumerkið þitt, svo og vörurnar og/eða þjónustuna sem þú býður, ásamt viðeigandi upplýsingum fyrir (mögulega) viðskiptavini þína. Vefsetur er samsett úr nokkrum vefsíðum.

Vefsetur er samsett úr nokkrum þáttum:

  • Skráð lén (URL).
  • Gagnaþjónn (e. server) sem hýsir skrárnar.
  • Efnisstjórnunarkerfi (e. content management system).

 

Þess vegna er það fyrsta sem þú þarft að gera að skrá lénið, sem endar oft á .com, .edu eða .org. Dæmi um lén er projectspecial.eu.

Staðurinn þar sem vefsetrið þitt verður staðsett er þjónninn; segjum að þetta sé þar sem vefsetrið þín mun vera. Þessi tegund þjónustu er kölluð „hýsing“ og henni er hægt að deila (vefsetrið þitt verður hýst með öðrum vefsetrum), hafa hana til sérnota (þjónn bara fyrir þig) eða í skýinu (þjónninn er ekki á áþreifanlegum stað).

Til að búa til vefsetrið eru tvær leiðir: ráða faglega þjónustu forritunarfyrirtækis eða búa hana til með til þess gerðu verkfæri á netinu. Þessi tegund verkfæris gerir þér mögulegt að stjórna innihaldinu, svo sem WordPress (https://wordpress.com) eða Joomla (https://www.joomla.org).

 

Ein ábending að lokum! Það er best að byrja vefsetrið þína með https, þar sem það gefur til kynna að vefsíður þess séu með öruggar, bjóði áreiðanleika og trúnað allra gesta á síðunni. Til að gera þetta verður vefþjónninn þinn að hafa SSL vottorð (e. SSL certificate) sett upp í tölvubúnað. Til dæmis má sjá að heimasíða Special er: https://projectspecial.eu.

SamfélagsmiðlarSmella til að lesa

Það er ekki skilyrði fyrir fyrirtæki þitt að vera á samfélagsmiðlum, en það er þó mjög mikilvægt ef þú stundar einhverskonar stafræn viðskipti. Fyrirtækjasnið á samfélagsnetum gerir þér kleift að mynda netsamfélag, tengjast viðskiptavinum þínum á nánari hátt, ásamt því að auglýsa vörur þínar og/eða þjónustu. 

En þú þarft ekki að vera til staðar á öllum samfélagsnetunum sem eru í notkun, heldur aðeins á þeim sem eru með notendur sem passa í markhóp fyrirtækisins þíns. Ef þú býrð til prófíl á samfélagsneti, ættirðu helst að nýta það vel og sýna virkni, því ef þú birtir ekki neitt í marga mánuði, mun hugsanlegum viðskiptavinum þínum ekki lítast á blikuna.

Ef þú vilt vita meira um hvernig á að nota samfélagsmiðla skaltu líta á SPECIAL þjálfunina ,,Stjórnun samfélagsmiðla" ;)

Stafræn markaðssetning

Stafræn markaðstækniSmella til að lesa

Leitarvélabestun (e. Search Engine Optimization, SEO)

Það snýst um að fínstilla leitarvélar þannig að fyrirtækið þitt birtist á fyrstu síðum leitarvéla, eins og Google, og bætir sýnileika vefsíðunnar.

Leitarvélamarkaðssetning (e. Search Engine Marketing, SEM)

Þessi tækni vísar til greiddra auglýsinga sem birtast á leitarvélum við ákveðnar leitarorðaleitir. Þetta er mögulegt t.d. í gegnum þjónustu eins og Google Ads. Helsti munurinn á SEO og SEM er sá að í SEM borgar þú fyrir að birtast á fyrstu síðum, en með SEO bætir þú þinn ,,náttúrulega” sýnileika með flóknari aðferðum sem tengjast leitarorðum.

Efnismarkaðssetning

Þessi tækni, eða stefna, felur í sér að búa til efni til að laða að mögulega viðskiptavini, í gegnum blogg, myndbönd, myndrit o.s.frv.

Markaðssetning á samfélagsmiðlum

Gengur út á að nota samfélagsmiðla til að laða að markhópinn. Einnig er hægt að nota greiddar auglýsingar.

Markaðssetning í tölvupósti

Í gegnum gagnamiðlara má eiga samskipti við viðskiptavini og markhópi, til dæmis í gegnum gagnagrunn tölvupósta. Það eru til verkfæri fyrir þetta, eins og Mailchimp (https://mailchimp.com/).

Hvað er stafræn markaðssetning?Smella til að lesa

Markaðssetning nær yfir ýmsar aðferðir og stefnur sem miða að því að bæta markaðssetningu vöru eða þjónustu og fullnægja þörfum markmarkaðs.

Þegar við tölum um stafræna markaðssetningu er átt við beitingu allra þeirra markaðsaðferða og stefna sem má notfæra sér innan stafrænna miðla, sem hefur rutt sér til rúms samhliða samfélagsnetum, þörfinni fyrir að hraðari þjónustu og nýrri tækni.

Stafræn markaðssetning hefur þróast samfara internetinu:

Vefur 1.0 – Statískur vefur

Auglýsingar færðust frá hefðbundnum miðlum eins og sjónvarpi og útvarpi yfir á fyrstu vefsíðurnar. Engin samskipti voru við notendur og var fyrirtækið það eina sem gat stjórnað því sem birt var.

Vefur 2.0 – Samfélagsvefur

Með tilkomu samfélagsmiðla og nýrrar tækni hefjast mikið og hratt gagnvirkt upplýsingaflæði. Netið verður leið til að búa til netsamfélag og fá endurgjöf frá notendum. Í dag erum við enn á þessum tímapunkti í þróun, á meðan vefur 3.0 (merkingarvefur, e. semantic web) er þegar farinn að þróast, sem þýðir að stafræn markaðssetning mun einnig halda áfram að þróast.

 

Samantekt

SamantektSmella til að lesa

Stafræn frumkvöðlastarfsemi

Á undanförnum árum hafa skapast ný tækifæri fyrir stafrænt frumkvöðlastarf og til að selja vörur og þjónustu á netinu.

Kostir stafræns frumkvöðlastarfs

Kostir stafræns frumkvöðlastarfs eru meðal annars minni stofnfjárfesting, meiri sveigjanleiki en í hefðbundnu frumkvöðlastarfi.

Starfsemi á netinu

Sérstaklega ætti að huga að því að hafa gott merki/lógó, vefsetur og jafnvel samfélagsmiðla.

Stafræn markaðssetning

Stafræn markaðssetning mun bæta markaðssetningu á vörum og þjónustu, með því að mæta þörfum markaðarins.

 

Verkefni! Lærið enn meira.

Áður en hafist er handa: SVÓT greining

Að hanna stafræna markaðsáætlun


Hvað manstu!




Tengd hugtök:
  • Blogg:
    Sú gerð vefsíðna þar sem efni er birt reglulega í formi styttri eða lengri frásagna eða greina og hefur venjulega ákveðið þema (tískublogg, matur, íþróttir, ferðalög, upplýsingatækni osfrv.). Það getur verið persónulegs eðlis, eða notað sem stafrænt verkfæri fyrir fyrirtæki.
  • HTTPS:
    HTTPS samskiptareglur (HyperText Transfer Protocol Secure) gerir örugga tengingu og gagnaflutning milli netþjóns og vafra, mögulegan.
  • Rafræn viðskipti:
    Rafræn viðskipti eru kaup og sala á vörum eða þjónustu í gegnum netið, í gegnum rafrænan vettvang, samfélagsmiðla og aðrar vefsíður.
  • SSL vottorð:
    SSL (Secure Sockets Layer) vottorð er öryggissamskiptaregla sem gerir fólki kleift að flytja gögn á milli vafra og vefþjóns á öruggan og dulkóðaðan hátt.
  • Vefsetur:
    Vefsetur er samsett úr öllum vefsíðum sama léns, sem geymdar eru á netþjóni. Í daglegu tali er hugtakið vefsíða notað bæði yfir vefsetur og vefsíður, þó að fyrirbærin séu ekki nákvæmlega eins.
  • Sjá öll hugtök

Ráðleggingar til kennara:

Í þessari námslotu verða nemendur að setja sig í spor stafræns frumkvöðuls, aðlaga hugarfar sitt þannig að þeir geti sinnt fyrirhuguðum verkefnum.

Því er þörf á að þeir öðlist góða þekkingu á öllu sem við kemur stafrænu umhverfi fyrirtækis, allt frá því hvernig á að búa til vefsíðu, til stafrænnar markaðssetningar og hvernig á að búa til og þróa markaðsáætlun.

Verkefni 1: í þessu verkefni styrkist greiningarfærni nemenda og gefa þarf dæmi um veikleika, ógnir, styrkleika og tækifæri sem mun hjálpa þeim að koma auga á hugsanlegar breytur fyrir greiningu sína.

Verkefni 2: í þessu verkefni má notfæra sér sniðmát fyrir stafræna markaðsáætlun, en það er ekki skylda að fylgja því. Markaðsáætlun getur verið mismunandi, allt eftir eiginleikum og þörfum hvers fyrirtækis.


Lykilorð

Frumkvöðlastarfsemi, stafræn, rafræn viðskipti, markaðssetning, vefsetur, vefsíða


Heimildaskrá

Hotmart (2022). Digital Entrepreneurship: all you need to know to start an online business in 2022. Hotmart. https://hotmart.com/en/blog/digital-entrepreneurship

Sánchez, J. (2020). 5 ejemplos de posibles negocios digitales en tiempos de Covid-19. Pymes y Autónomos. https://www.pymesyautonomos.com/marketing-y-comercial/5-ejemplos-posibles-negocios-digitales-tiempos-covid-19

MBA Madrid (2019). En qué consiste el emprendimiento digital. Cámara de Comercio de Madrid. https://www.mba-madrid.com/empresas/emprendimiento-digital/

Mundo Bloggr. Ventajas y desventajas del emprendimiento digital. Mundo Bloggr. https://mundobloggr.com/emprendimiento-digital/ventajas-y-desventajas-del-emprendimiento-digital/

Calabuig, J. (2020). Los 10 primeros pasos para emprender un negocio digital con éxito. Quiero Tener Un Blog. https://quierotenerunblog.com/cuales-son-los-primeros-pasos-para-emprender-un-negocio-digital/

Ortiz, A. (2022). ¿Qué es el marketing digital o marketing online? Estrategias y herramientas. InboundCycle. https://www.inboundcycle.com/blog-de-inbound-marketing/que-es-el-marketing-digital-o-marketing-online

Llasera, J. P. (2020). 7 características para diseñar un buen logo hoy en día. Imborrable. https://imborrable.com/blog/7-caracteristicas-para-disenar-un-buen-logo-hoy/

De Souza, I. (2021). Cómo crear un sitio web: echa un vistazo al paso a paso para hacer el tuyo desde cero. Rock Content. https://rockcontent.com/es/blog/como-crear-un-sitio-web/



SAMSTARFSAÐILAR

Hafðu samband



2021-1-IS01-KA220-VET-000027983

Þetta verkefni er unnið með styrk frá Erasmus+, samstarfsáætlun ESB. Útgáfa þessi endurspeglar eingöngu afstöðu höfundar og framkvæmdarstjórn ESB ber enga ábyrgð á því hvernig upplýsingar úr henni eru nýttar.


Legal description – Creative Commons licensing: The materials published on the SPECIAL project website are classified as Open Educational Resources' (OER) and can be freely (without permission of their creators): downloaded, used, reused, copied, adapted, and shared by users, with information about the source of their origin.