Lýsing
Rannsóknir hafa sýnt að þegar kemur að ráðningarviðmiðum á vinnumarkaði, er ekki nóg að búa að faglegri færni (sérfræðiþekkingu og tæknikunnáttu). Vinnuveitendur leita til þeirra sem hafa leiðtogahæfileika og samskiptahæfileika, eiginleikum sem byggja á svokölluðum mjúkum færniþáttum (Dixon, o.fl., 2010; Vasanthakumari, 2019). Það er í samspili faglegrar færni (e. hard skills) og mjúkrar færni (e. soft skills) sem við náum framförum. Í þessu þjálfunarnámskeiði eru helstu áhersluatriðin: valdefling, markmiðasetning og félagsfærni. Þessi þrjú mikilvægu mál munu skarast, þar sem þau tengjast náið og hafa víxlverkandi áhrif hvert á annað.
Kynning: Mjúk færni Byrjum á að skoða hugtakið!Smella til að lesa
Dæmi (EucA, 2014)Smella til að lesa
Valdefling Þrjár stoðir valdeflingarSmella til að lesa
SkilgreiningSmella til að lesa
Leiðin að valdeflinguSmella til að lesa
Markmiðasetning SkilgreiningSmella til að lesa
SMART líkaniðSmella til að lesa
Hindranir á veginumSmella til að lesa
IDEALSmella til að lesa
Félagsfærni Úrlausn ágreiningsSmella til að lesa
Fyrir árangursríka úrlausn ágreinings þarftu að kunna allt þriggja eftirfarandi:
Vertu óhrædd(ur) við að skipta um skoðun og finna málamiðlanir. Oooog mundu eftir IDEAL líkaninu! Það kemur sér vel í mörgum aðstæðum. SkilgreiningSmella til að lesa
KostirSmella til að lesa
SamskiptiSmella til að lesa
Bein samskipti hafa reynst þýðingarmeiri en samskipti á netinu. „Samveran“ gegnir mikilvægu hlutverki. Líkamstjáningin, svipbrigði, hvernig talað er (rödd, hlé, mismunandi áherslur á orð) o.s.frv. (Dupuis and Ramsey, 2011; O‘Day and Heimberg, 2021; Vasanthakumari, 2019)
Hæfni í samskiptum hefur tvær hliðar; hlustunarhæfni og sannfæringarhæfni. Hæfni til hlustunar/eftirtektar: 1.Gefðu gaum að því sem sagt er
2.Komdu fram við ræðumanninn sem jafningja
3.Sýndu notalega og hvetjandi nærveru
4.Spurðu vandlega ígrundaðra spurninga
5.Takmarkaðu upplýsingagjöf
6.Gefðu jákvæð viðbrögð
Hæfni til að sannfæra: 1.Höfðaðu til skynsemi og tilfinninga áhorfenda þinna
2.Finndu viðeigandi stíl í tungumáli, myndefni og öðrum samskiptum (miðað við hverjir áhorfendur þínir eru, hvað þeir vita nú þegar, hvert samhengið er m.v. stað og tíma)
3.Þekktu kjarnahugmyndina og raðaðu upplýsingum upp á rökréttan hátt
4.Útskýrðu hugmyndir þínar
5.Notaðu samskiptaverkfæri, eins og augnsamband og myndlíkingar
(Barker, 2010) Fjórar gerðir félagsfærni …sem þú getur tileinkað þér!Smella til að lesa
SamkenndSmella til að lesa
Ákveðni/einurðSmella til að lesa
Einurð krefst
Virðing skiptir sköpum þegar kemur að einurð í samskiptaháttum. Þú verður að virða þínar eigin skoðanir, en einnig sjónarmið hinna! Samantekt SamantektSmella til að lesa
|
||||||||
Verkefni! Lærið enn meira. | ||||||||
Færniþróun, tengslanet Markmiðasetning og ræðumennska Að leysa ágreining/vandamál í teymi |
Hvað manstu!
Tengd hugtök:
-
Markmiðasetning:
Taka ákvörðun um og skipuleggja hverju þú vilt ná. -
Mjúk færni:
Tegund af færni sem fæst í daglegu lífi, í gegnum persónulega reynslu og hugleiðingar. Sambland af færni í mannlegum samskiptum og félagsfærni, einnig kölluð lífsleikni (eða mannafærni). -
Samskiptahæfileikar:
Lærðir hæfileikar sem gera einstaklingi kleift að eiga í viðeigandi og farsælum samskiptum við aðra. -
Valdefling:
Að búa yfir valdi og frelsi til að fylgja löngunum þínum, ásamt því að miðla valdeflingu áfram. - Sjá öll hugtök
Ráðleggingar til kennara:
Í þessari námseiningu verða nemendur að umgangast hvern annan á mismunandi hátt, með frjálsu spjalli, ræðuæfingum og teymisvinnu, aðlaga hugarfar sitt þannig að þeir geti sinnt fyrirhuguðum verkefnum.
Mikilvægt er að nemendur reyni sitt besta til að taka þátt, finni hugrekki til að láta vaða og læri af hverju því sem verkefnin kunna að hafa í för með sér.
Verkefni 1: í þessu verkefni styrkist félagsfærni nemenda og sjálfsþekking þeirra þegar kemur að gildum og markmiðum í lífinu. Þar sem það felur í sér virka, augliti til auglits, tengslavinnu, mun félagslegt net þeirra stækka fyrir vikið.
Verkefni 2: sniðmát fyrir kosningaræðu fylgir með þessu verkefni, en það er ekki skylda að fara eftir því. Þetta verkefni getur verið streituvaldandi fyrir nemendur sem eru með félagsfælni.
Verkefni 3: Notkun IDEAL líkansins er skylda í þessu verkefni, því skal fylgt eftir. Tímastjórnun er mikilvæg með þessari teymisvinnu og lausn vandamála, því hún getur teygt sig yfir lengri tíma en úthlutað er.
Lykilorð
Mjúk færni, lífsleikni, samskipti, valdefling, markmiðasetning, félagsfærni
Heimildaskrá
American Psychological Association. (N.d.) Social Skills. APA Dictionary of Psychology (online). https://dictionary.apa.org/social-skills.
Barker,A. (2010). Improve your communication skills(2 nd end), London, Philadelphia
Cambridge University Press. (N.d.) Empowerment. Cambridge Dictionary (online). https://dictionary.cambridge.org/dictionary/english/empowerment.
Cambridge University Press. (N.d.) Goal setting. Cambridge Dictionary (online). https://dictionary.cambridge.org/dictionary/english/goal-setting.
Dixon, Jami; Belnap, Cody; Albrecht, Chad and Lee, Konrad. (2010). The Importance of Soft Skills. Corporate Finance Review; New York Vol. 14, Iss. 6, (May/Jun 2010): 35-38.
Dupuis, E.C., & Ramsey, M.A. (2011). The Relation of Social Support to Depression in Massively Multiplayer Online Role-Playing Games. Journal of Applied Social Psychology, 41(10), 2479-2491.
McCarthy, Paul. (2018). Goal setting. In A. Mugford, & J. G. Cremades (Eds.), Sport, Exercise, and Performance Psychology: Theories and Applications (1st Edition ed.). Routledge .
O’Day, E. B., & Heimberg, R. G. (2021). Social media use, social anxiety, and loneliness: A systematic review. Computers in Human Behavior Reports, 3, 1-13. https://doi.org/10.1016/j.chbr.2021.100070
Shier, H. (2019). "Empowerment" of Children and Adolescents: What is it, how does it occur, and what is the adult supporter's role? Finding answers in the experience of young people organising with CESESMA in Nicaragua.
Steinberg, L.D. (2011). Adolescence. New York: McGraw-Hil.
Vasanthakumari, S. (2019). Soft skills and its application in work place. World. Journal of Advanced Research and Reviews, 3(2), 066-072.
Yin, Y., Wang, Y., and Lu, Y. (2019). Antecedents and outcomes of employee empowerment practices: A theoretical extension with empirical evidence.
-
Tengt fræðsluefni
- Gróskuhugarfar
- Sjálfsvitund, trú á eigin getu og gagnrýnin hugsun
Þetta verkefni er unnið með styrk frá Erasmus+, samstarfsáætlun ESB. Útgáfa þessi endurspeglar eingöngu afstöðu höfundar og framkvæmdarstjórn ESB ber enga ábyrgð á því hvernig upplýsingar úr henni eru nýttar.
Legal description – Creative Commons licensing: The materials published on the SPECIAL project website are classified as Open Educational Resources' (OER) and can be freely (without permission of their creators): downloaded, used, reused, copied, adapted, and shared by users, with information about the source of their origin.