Til baka    
Lokafundur SPECIAL á Húsavík

Lokafundur SPECIAL á Húsavík


Húsavík 13.06.2023

Samstarfsaðilar í SPECIAL verkefninu funduðu á Húsavík í húsakynnum Þekkingarnetsins á fjórða og síðasta staðfundi verkefnisins.

SPECIAL verkefnið, sem samanstendur af sjö samstarfsaðilum frá sex Evrópulöndum (Svíþjóð, Ítalíu, Íslandi, Belgíu, Spáni og Rúmeníu) og er styrkt af Erasmus+ áætlun framkvæmdastjórnar Evrópusambandsins, miðar að því að styrkja, endurvekja og hlúa að „lífsleikni“ og „mjúkri“ færni ungs fólks sem hvorki stundar nám eða hefur atvinnu (NEETs) til að hjálpa þeim að (endur)aðlagast samfélögum og vinnumarkaði eftir COVID.

Á fundinum gátu samstarfsaðilar rætt stöðu verkefnisins og þá vinnu sem framundan er á lokasprettinum. Mikilvægt tækifæri fólst í því að fara ítarlega í mál eins og gæðamat, verkefnisstjórnun og kynningu á afurðum verkefnisins.

Á síðustu vikum verkefnisins munu samstarfsaðilarnir vinna að þróun PR4 verkefnispakkans, leiðbeinga til þeirra sem vilja nýta sér reynslu verkefnisins og samantektar til stefnumörkunar fyrir hagsmunaaðila. Þessi lokavinna skiptir miklu máli til að tryggja að verkefnisvinnan nýtist sem best í framhaldinu.

SPECIAL fræðsluefnið (PR3) er tilbúið og hægt að nálgast það á fræðsluvefnum. Fræðsluvefurinn hýsir afurðir verkefnisins s.s. skýrslur, þjálfunar/fræðsluefni, leiðbeiningar og ráðleggingar og er nú aðgengilegur á www.projectspecial.eu á sex tungumálum (ensku, spænsku, ítölsku, íslensku, íslensku, rúmensku og sænsku). 

Á fundinum gafst gott tækifæri til að læra af samstarfinu og styrkja tegnslin fyrir frekara samstarf. 

Fyrir frekari fréttir af verkefninu: Vefsíða verkefnisins 

 Facebook og Youtube!


Frétt birt, dagsetning: 13/06/2023

SAMSTARFSAÐILAR

Hafðu samband



2021-1-IS01-KA220-VET-000027983

Þetta verkefni er unnið með styrk frá Erasmus+, samstarfsáætlun ESB. Útgáfa þessi endurspeglar eingöngu afstöðu höfundar og framkvæmdarstjórn ESB ber enga ábyrgð á því hvernig upplýsingar úr henni eru nýttar.


Legal description – Creative Commons licensing: The materials published on the SPECIAL project website are classified as Open Educational Resources' (OER) and can be freely (without permission of their creators): downloaded, used, reused, copied, adapted, and shared by users, with information about the source of their origin.